Skilmálar

Steinabón ehf. Skilmálar
Steinabón ehf.
Kt. 560118-0740
Vsk.nr. 130450
Iðavellir 11b, 230 Reykjanesbær
Símanúmer: 845 2846

1 gr. Almennt um sölu á vörum

Steinabón ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.



2 gr. Afhending á vörum

Allar vörur eru afgreiddar í póstsendingu eins fljótt og auðið er eftir að pöntun fer fram. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Steinabón ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.


3 gr. Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Steinabón ehf. með spurningar.



4 gr. Verð á söluvörum

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.



5. gr. Skattar og gjöld á söluvörum

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.



6. gr. Trúnaður við kaup á söluvörum

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.



7. gr. Póstlisti

Með að samþykkja þessa skilmála samþykkir þú að Steinabón megi senda þér netpósta, sms eða með öðrum markaðsverkfærum. Steinabón vill gefa viðskiptavinum bestu tilboðin, tilkynna breytingar eða koma öðrum skilaboðum hratt og örugglega til viðskiptavina.


8 gr. Ágreiningur

Greini aðila að þjónustusamningi þessum á um réttindi sín og skyldur samkvæmt lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup geta þeir, einn eða fleiri, snúið sér til kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og óskað eftir álitsgerð nefndarinnar um ágreiningsefnið.

Niðurstöðum kærunefndar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda en aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti.


9 gr. Undirritun þessa skilmála

Með að kvitta undir eftirfarandi skilmála hér samþykkir þú ofangreindar greinar. Ef um ný viðskipti er að ræða gilda þessir skilmálar fyrir öll komandi viðskipti.